Starfsferill og menntun
Ég starfa hjá Birtíngi útgáfufélagi sem sölu- og markaðsstjóri. Starfa jafnframt sem leiðsögumaður yfir sumartímann.
Ég lærði kvikmyndagerð í Frakklandi og er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.Reynsla af félagsstörfum
Ég hef víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hef starfað við verslunarstörf, í fjölmiðlum, við markaðssetningu og ráðgjöf. Ég starfaði hjá 365 og Sýn í 15 ár lengst af sem verkefnastjóri hjá Vísi. Sérfræðingur hjá ASÍ í húsnæðismálum, formaður húsnæðisnefndar VR og stjórnarmaður í Bjargi og Blæ. Ég hef verið félagi í VR í tæp 30 ár og gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Ég hef setið í stjórn VR frá 2012 ég var varaformaður VR 2013–2017, í miðstjórn ASÍ og ég er núna í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.Helstu áherslur
Ég hef verið í forystu í húsnæðismálum innan verkalýðshreyfingarinnar fyrir VR og ASÍ og tekið virkan þátt í uppbyggingu Bjargs og Blæjar. Ég tel fjölbreytt húsnæðiskerfi lykil að heilbrigðum húsnæðismarkaði. Nú er stefnt að uppbyggingu nýs hverfis í Úlfársdal með aðkomu verkalýðshreyfingarinnar og ég vil fylgja því verkefni eftir þar til það verður að veruleika. Reynslan sýnir að verkalýðshreyfingin getur haft afgerandi áhrif.
Ævilíkur aukast og fólk heldur heilsu lengur. Fólk 50 ára og eldra nýtur þó ekki alltaf sömu tækifæra og aðrir. Aldursfordómar eru raunveruleg áskorun sem útilokar dýrmæta reynslu af vinnumarkaði. Ég vil að VR verði leiðandi í baráttunni gegn aldursfordómum.
Sí- og endurmenntun er lykillinn að breyttu starfsumhverfi. Sjálfvirknivæðing og gervigreind kalla á nýja hæfni. Við þurfum að tryggja fjölbreytt námsúrræði og undirbúa félagsmenn fyrir störf framtíðarinnar.
Öryggi verslunarfólks í daglegum störfum verður ávallt að vera í forgangi, þar á meðal vernd gegn ofbeldi og áreiti.Ég vil standa vörð um sjúkrasjóð VR. Félagsfólk verður að geta reitt sig á stuðning við heilsubrest og skerta starfsorku. Sjúkrasjóðurinn er hornsteinn stéttarfélagsins.
Ég býð fram krafta mína, þekkingu og áratuga reynslu í þágu félagsins og óska eftir stuðningi í komandi kosningum.
Tilgangur minn með framboði til formanns er að gæta hagsmuna alls félags fólks í VR. Tryggja þarf vel launuð og góð störf, öryggi á vinnustað og öryggi starfa. Huga þarf betur að öryggi verslunarfólks gagnvart ofbeldi og áreiti í daglegum störfum. Efla þarf trúnaðarmenn félagsins og virkja betur grasrótina í félaginu. Berjast fyrir auknum áhrifum launafólks til að bæta störf sín og starfsumhverfi. Að mínu mati eiga áherslur VR fyrst og fremst að snúast um þau mál sem skipta VR félaga mestu og þar liggja mínar áherslur.
Um mig
Ég hef víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hef starfað við fjölbreytt störf, allt frá sjómennsku og verslunarstörfum til fjölmiðla, markaðssetningar og húsnæðismála. Meðal starfa sem ég hef sinnt eru:
Fjölmiðlar og markaðsmál: Sölu- og verkefnastjóri hjá Vísi, deildarstjóri vöruþróunar hjá Sýn og Vodafone.
Húsnæðismál: Sérfræðingur hjá ASÍ, formaður húsnæðisnefndar VR, stjórnarmaður í Bjargi og Blæ.
Félagsstörf: Setið í stjórn VR frá 2012, varaformaður 2013-2017, fulltrúi í miðstjórn ASÍ, stjórnarmaður í Lífeyrissjóði verzlunarmanna frá . Ég hef verið virkur í gerð kjarasamninga VR
Sat í stjórn ÍTR og hverfaráði Vesturbæjar 2014-2018.
Mínar áherslur
Húsnæðismál
Öruggt húsnæði er grunnþörf og mannréttindi. Fjölskyldur eiga að geta treyst á að hafa þak yfir höfuðið, hvort sem þær velja að leigja eða kaupa.
Til þess að tryggja stöðugleika og réttlæti á húsnæðismarkaði þarf bæði að fjölga íbúðum og skapa raunveruleg úrræði fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref.
Aldursfordómar
Þegar ævilíkur aukast og fólk heldur góðri heilsu lengur, þarf vinnumarkaðurinn að fylgja eftir og tryggja að einstaklingar 50 ára og eldri njóti sömu tækifæra og aðrir. Aldursfordómar eru raunveruleg áskorun sem útilokar dýrmæta reynslu og þekkingu af vinnumarkaði.
Tæknibreytingar og hröð þróun hafa í sumum tilfellum ýtt undir þá hugmynd að eldra fólk eigi erfiðara með að tileinka sér nýja færni. Þessi hugmynd er bæði úrelt og skaðleg.
Ég mun beita mér fyrir:
baráttu gegn aldursfordómum á vinnumarkaði.
Sí- og endurmenntun fyrir 50+
Staða eldra fólks verði efld með sérhæfðri ráðgjöf og aðgerðum.
Eldra fólk fái öflugri stuðning í húsnæðismálum